Fimmti riddarinn
EAN13
9788728542118
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Kvennamorðklúbburinn
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Fimmti riddarinn

SAGA Egmont

Kvennamorðklúbburinn

Livre numérique

Í fimmtu bókinni um Kvennamorðklúbbinn leitar Lindsay Boxer að hættulegasta
morðingjanum til þessa, sannkölluðum engli dauðans.

Nýr meðlimur Kvennamorðklúbbsins, lögfræðingurinn Yuki Castellano, gengur til
liðs við Lindsay Boxer til að rannsaka röð dularfullra dauðdaga sem eiga sér
stað meðal sjúklinga á sjúkrahúsi. Á sama tíma standa stjórnendur spítalans í
hörðu dómsmáli vegna læknamistaka og eru því síður en svo samvinnuþýð. En
Lindsay og Yuki eru sannfærðar um að morðinginn sé einn af starfsfólkinu og
þær leggja allt í sölurnar til að komast að hinu sanna, enda er mikið í húfi.

Kvennamorðklúbburinn

Kvennamorðklúbburinn er röð spennusagna eftir James Patterson. Þær eiga það
allar sameiginlegt að gerast í San Francisco og innihalda sömu fjórar
aðalpersónurnar, konur sem láta ekkert stoppa sig til að réttlætið nái fram að
ganga. Árið 2007 voru gerðir sjónvarpsþættir sem byggðu á bókunum og báru sama
nafn.

James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans
hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem
efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.

Maxine Paetro er bandarískur rithöfundur. Hún er best þekkt fyrir bæði stakar
bækur og seríur sem hún hefur skrifað með James Patterson.

Bókin fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá notendum Goodreads.
S'identifier pour envoyer des commentaires.